Í ánni eru leyfðar 18 stangir á 9 svæðum, svæði 1-9 og eru 2 stangir á hverju svæði. Um hverja stöng mega vera 2 veiðimenn og skulu þeir þá vera saman á veiðistað. Ef veiðimenn eru staðnir að því að nota fleiri stangir en leyfilegt er, mega þeir búast við því að vera vísað úr ánni þann daginn. Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Í hléinu skipta menn um svæði þannig að þeir veiða á svæðinu fyrir neðan það svæði sem þeir veiddu á um morguninn.
1. júlí – 1. ágúst
Kl. 07-13 og kl. 16-22.
1. ágúst – 10. september
Kl. 07-13 og kl. 15-21.
11. september til loka
Kl. 07-13 og kl. 14 -20.
Félagið hefur sett upp klakkistur við helstu veiðistaði og eru stórlaxar keyptir af veiðimönnum. Miðað er við lax sem er 90 cm á stærri, óháð kyni. Veiðimenn fá 50% af þyngd laxsins sem þeir setja í klakkistur í formi reykts stórlax. Einnig er fallegur sjóbirtingur og fallegar bleikjur stærri en 60 cm keyptar af veiðimönnum fyrir 50% af þyngd í reyktum laxi.
Fullþreyta þarf fisk sem setja á í klakkistu, nota þarf hnútalausan háf og forðast allt hreisturslos. Alls ekki má stranda laxi sem setja á í kistu. Ef fiskur er tekin á maðk má klippa á girni í stað þess að reyna að losa öngul sem er djúpt tekinn. Auðvelt er að flytja hrygnur lifandi í klakkistu ef hrygnan er flutt í laxaplasti með hausinn niður og laxaplastpokinn hafður hálffullur af vatni. Gott er ef flytja á hrygnur um lengri veg að hafa plastið tvöfalt.
Öll skráning á afla er í veiðiþjónustuhúsi Veiðifélagsins sem staðsett er við Veiðihúsin við Eystri Rangá á svæði 4. Ekið er að veiðihúsunum frá þjóðvegi 1 um km fyrir austan Djúpadal. Þar er alltaf heitt á könnunni og aðstaða til að ganga frá fiski og skrá í veiðibók. Einnig er þar kælir undir afla og allar upplýsingar um veiði. Þar geta veiðimenn fengið laxaplast áður en veiðar hefjast undir afla og eru þeir beðnir um að ganga frá hverjum laxi sér í poka til hægðarauka í vigtun og skráningu einnig er mjög gott að hafa plast til að geta flutt stórar hrygnur í lifandi í klakkistur.