Affall í Landeyjum

 

Eystri Rangá

 

Þverá í Fljótshlíð

 

 

 

Upplýsingar
Saga Þverár
Veiðireglur
Veiðikort
Verðskrá
Gisting

 

Upplýsingar

 

Þverá í Fljótshlíð er samsafn áa í Fljótshlíð sem saman mynda Þveránna. Allar eiga þær upptök sín á heiðunum ofan við Fljótshlíðina og eru að uppistöðu lindár með dragáreinkennum.  Þeirra helstar eru;

Bleiksá er veitt sem stendur út í Markarfljót en rann áður með vesturkvíslum Markarfljóts út í Þverá. Þeirri leið var lokað með varnargarðinum við Háamúla á miðri síðustu öld. Bleiksá er hrein lindará með um 2 m3/sek. rennsli.

Merkjá má nú heita vera upptakakvísl Þverár og rennsli um 1,5 m3/sek. Í Merkjánni er hinn þekkti Gluggafoss. Merkáin er nær hrein lindá og köld.

Litla-Þverá er áin sem gefur Þveránni nafn sitt um 0,5 m3/sek. og er meiri dragá en Merkjáin og hlýrri. Litla-Þverá er mjög grýtt og hefur talsvert uppeldisgildi fyrir sjóbirting.

Grjótá er svipuð Litlu-Þverá um 0,5 m3/sek. og rennur í Kvoslækjará.

Kvoslækjará er líka svipuð Litlu-Þverá og Grjótá en er bæði hlýrri og stærri um 1,5 m3/sek við ós í Þverá eftir að Grjótá rennur í hana.

Fróðastaðalækur er um 0,25 m3/sek. og sameinast Þverá rétt ofan brúar á þjóðvegi 1.

Stóri-Skurður er framræsluskurður sem fellur til Þverár nokkrum km. ofan óss við Eystri-Rangá og er um 0,25 m3/sek. Skurðurinn þurrkar mýrar sunnan og austan við Hvolsvöll og austur að Fljótshlíð.

Við ós í Eystri-Rangá er Þverá orðin um 4 m3/sek. og er veiðisvæðið að Efri-Þverá um 20 km að lengd. Þar sem Þverá er að stofni til lindá er vatnsmagn hennar mjög stöðugt.