Upplýsingar
Eystri Rangá sameinast Þverá um 5 km. austan við ármót Ytri Rangár og Þverár. Hún er allmikið vatnsfall, (30 - 40 rúmm./sek.) um það bil 60 km. löng, lindá með sterk dragáreinkenni. Um 18 km. ofan ármóta fellur Fiská til hennar frá vinstri og Stokkalækur frá hægri, nokkru neðar. Eystri Rangá er fiskgeng um það bil 22 km. upp að Tungufossi hjá Árgilsstöðum. Meðalveiði síðustu tíu ára er 4194 laxar sem er hæsta meðalveiði laxveiðiár á Íslandi.
Reglur
Í ánni eru leyfðar 18 stangir á 9 svæðum , svæði 1-9 og eru 2 stangir á hverju svæði. Um hverja stöng mega vera 2 veiðimenn og skulu þeir þá vera saman á veiðistað. Ef veiðimenn eru staðnir að því að nota fleiri
stangir en leyfilegt er, mega þeir búast við því að vera vísað úr ánni þann daginn. Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Í hléinu skipta menn um svæði þannig að þeir veiða á svæðinu fyrir neðan það svæði sem þeir veiddu á um morguninn.
Veiðitími
Frá 1. júlí og til 10. ágúst verður veitt frá 07-13 og 16-22
Frá 11. ágúst og til 10. sept. verður veitt frá 07-13 og 15-21
Frá 11. sept. verður veitt frá 07-13 og 14 -20
Til sérstakrar athugunar fyrir veiðimenn
Skráið afla áður en haldið er heim.
Akið ekki utan vega og lokið hliðum.
Veiðifélagið ber ekki ábyrgð v/tjóns sem búsmali veldur á ökutækjum.
Meðferð skotvopna er bönnuð við ána og einnig er óheimilt að tjalda við ána án leyfis landeigenda.
Skráning afla
Öll skráning á afla er í veiðiþjónustuhúsi Veiðifélagsins sem staðsett er við Veiðihúsin við Eystri Rangá á svæði 4. Ekið er að veiðihúsunum frá þjóðvegi 1 um km fyrir austan Djúpadal. Þar er alltaf heitt á könnunni og aðstaða til að ganga frá fiski og skrá í veiðibók. Einnig er þar kælir undir afla og allar upplýsingar um veiði. Þar geta veiðimenn fengið laxaplast áður en veiðar hefjast undir afla og eru þeir beðnir um að ganga frá hverjum laxi sér í poka til hægðarauka í vigtun og skráningu einnig er mjög gott að hafa plast til að geta flutt stórar hrygnur í lifandi í klakkistur.
Klakkistur
Félagið hefur sett upp klakkistur við helstu veiðistaði og eru stórlaxar keyptir af veiðimönnum. Er miðað við hrygnur sem eru stærri en 75 cm og hængar sem eru stærri en 85 cm. Veiðimenn fá 50 % af þyngd laxsins sem þeir setja í klakkistur í formi reykts stórlax úr Þjórsá og Hvítá.
Meðferð á klakfiski
Fullþreyta þarf fisk sem setja á í klakkistu,nota þarf hnútalausan háf og forðast allt hreisturslos. Alls ekki má stranda laxi sem setja á í kistu. Ef fiskur er tekin á maðk má klippa á girni í stað þess að reyna að losa öngul sem er djúpt tekinn. Auðvelt er að flytja hrygnur lifandi í klakkistu ef hrygnan er flutt í laxaplasti með hausinn niður og laxaplastpokinn hafður hálffullur af vatni. Gott er ef flytja á hrygnur um lengri veg að hafa plastið tvöfalt.
Bestu kveðjur Einar Lúðvíksson |